Almennir skilmálar

 

Kaupskilmálar

Vefverslunin golfa.is selur golffatnað fyrir konur. Einfalt og þægilegt er að skoða og gera kaup í vefversluninni. Frí sending á næsta pósthús eða í póstbox er innifalið á öllum pöntunum. Pantanir eru sendar næsta virka dag eftir að pöntun berst. Þú velur vöru, setur í körfu og velur greiðslufyrirkomulag. Í kjölfarið færðu kvittun fyrir vörukaupunum í tölvupósti og vörur teknar til og gerðar klárar til sendingar. Er þá kominn á gildandi samningur á milli þín og vefverslunarinnar golfa.is Sé vara uppseld verður haft samband við þig hið fyrsta og þér boðin önnur vara eða full endurgreiðsla. Varan er eign golfa.is þar til kaupandi hefur greitt vöruna að fullu. Pantanir sem gerðar eru um helgi eru afgreiddar fyrsta virka dag þar á eftir. Vefverslunin áskilur sér rétt að falla frá afhendingu vöru ef skýr verð og/eða prentvilla kemur fram á vefsíðunni. Munum við leiðrétta þær villur eins fljótt og auðið er. Allar upplýsingar og myndir eru birtar með fyrirvara um innsláttarvillur. Alltaf er gott að hafa í huga að litamunur getur verið á milli tækja og skjáa.

Rekstraraðili golfa.is er
A11 ehf, kennitala 661011-1300
Lögheimili er Klettháls 1, 110 Rvk en starfstöð vefverslunarinnar er Búðavað 17, 110 Reykjavík.